24.09.2008 14:46:20 / Maggidi

123.is/tuttudoktor

Jæja núna hef ég verið að hugsa um að segja upp á þessari síðu og reyna fyrir mér ein... Ég er enn að vinna í hinni síðunni svo að ég verð í bandi um hver sú síða ku vera á næstunni.
Takk fyrir að fylgjast með bullinu í mér.

Kv. Maggidi sem langar að prófa að breyta til.


Komið á hreint
nýja síðan er
--->  www.123.is/tuttudoktor

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.09.2008 21:42:23 / Maggidi

....

...Helgin að baki og talandi um dugnað, við erum að tala um það að Margrét Andersdóttir yngri skipti um kúpplingu og lagaði brotna stuðarann minn. Að sjálfsögðu þurfti ég á hjálp að halda frá pabba og Jóa, eeeen við erum þó að tala um það að ég er með svart subb undir nöglunum og er með sár á nefinu eftir að ég rak mig í þegar ég var undir bílnum að vesenast. Og þegar að ég hafði lokið þessu af á einum degi fékk ég mér bjór, þannig að ég var spurð að því hvenær ég ætti von á að typpið færi að vaxa á mig. Ég get svo svarið það eins og maður geti ekki verið að vesenast aðeins í bílnum sínum án þess að maður sé með e-ð dótarí lafandi neðan á sér? Ekki að ég sé einhver feministi en þetta var það sem fyllti mælinn!!

Vildi bara deila dugnaði og pirrelsi með fólki um heim allan.

Kv. Margrét typpalingur:$

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.09.2008 13:27:29 / Maggidi

Öfug sálfræði?

Hver man ekki eftir tímon og púmba þættinum með edda litla og öfugusálfræðinni? Ég man allavega eftir því og ég geri passlega ráð fyrir því að víví mín geri það líka. Ástæðan fyrir því að ég er að mynnast á þennan sérstaka þátt er sá að ég er ekki alveg viss hvað ein kona var að meina þegar að hún var að segja mér hvað ég ætti að gera og hvað ég ætti ekki að gera. Þannig er mál með vexti að ég fór til sjúkraþjálfara í dag, sem er ekki nema frásögu færandi nema af því að hún var að segja mér að ég mætti alls ekki fara út að hlaupa, ekki gera kviðæfingar og ekki bakæfingar. Hins vegar ætti ég að vera dugleg að fara út í stutta göngutúra og þá erum við að tala um hámark 30 mín í senn:$. Hvernig göngutúr er hálftíma göngutúr??? Út á enda á hlíðargötunni og aftur heim? Ég er núna búin að vera að spá hvort að hún hafi í raun verið gífurlega kaldhæðin og hafi verið að meina að ég ætti bara að vera dugleg að hreyfa mig. Allavega er ég alls ekki á því að 30 mín. göngutúr nokkrum sinnum á dag sé eitthvað sem ég sé að fara að leggja fyrir mig. Mér finnst mun gáfulegra að ganga í kannski 2 tíma og vera þá búin með labbið, í staðin fyrir að saxa þetta niður í 4 litla göngutúra!!
En svo fer maður að velta því fyrir sér hvort að maður viti e-ð hvað maður er bulla þar sem að hún á að kallast menntamanneskja þessi kona og ég er bara með grunnskólapróf. Ætti ég að vera e-ð að rífa mig?

Annars er allt þetta venjulega að frétta, ég datt útúr rúminu mínu í gær og tognaði í hendinni. Við skulum hafa það á tandur hreinu að ég var ein uppí rúminu að velta mér og datt aftur fyrir mig úr rúminu. 
    Nú sit ég, vafin um vinsti hendina að reyna að skrifa blogg til að drepa tíman á meðan að ég er í eyðu í skólanum. Lífið getur stundum verið svolítið leiðigjarnt.

Kv. Margrét 4x lítill hálftíma göngugarpur.

» 5 hafa sagt sína skoðun

16.08.2008 18:21:12 / Maggidi

It's been a while, since I could say...

Hæ hóin mín.

Jæja, ef að fólk þekkir mig e-ð að ráði þá veit það að þegar að ég fæ hugmynd, þá framkvæmi ég hana án þess að hugsa um það hvernig það fer alt saman:$ Jæja, ég gerði eitt svoleiðist núna fimmtudaginn síðasta. Ég klippti á mér hárið8| Og ég er ekki búin, ég klippti það stutt. Ég var með stutt hár með stigum en ekki styttum. Jæja það var vægast sagt illa gert, þannig að ég fékk nú Stebbu frænku mína til að laga það. Þ.e.a.s. klippa það og lita það. Þannig að núna er ég með stutt dökkt hár, og já stuttt, nær ekki öxlum:O
Ákvað bara að tilkynna þetta á vefnum... svona vara fólk sem hittir mig við...        


kv. Maggidi, stutthærða:haha:

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.08.2008 18:38:59 / Maggidi

á einhver vin, sem er svona klár?

Góðan daginn.


Ég sit hérna heima hjá mér, og er búin að sitja á nákvæmlega sama staðnum í ég veit ekki hvað langan tíma. Allavega var ég ótrúlega dugleg og fór í próf í morgun í líffræði 103, og gekk bara ágætlega:) Þannig að ég á bara eitt próf eftir sem er í jarðfræði 103 og það er á miðvikudaginn. Eftir það á ég eina vakt eftir uppá elliheimili, verður líklega mjög skrítið að hætta þarna eftir 2 ár. Jæja en eftir vaktina á fimmtudeginum þá get ég gert það sem mér dettur í hug:D Þvílík gleði og hamingja:haha: Þá verður svo sannarlega gleðin við völd, þó hún verði mun meiri líklega á þriðjud. eða miðvikud. í næstu viku8) Allavega mér fannst það bara vera við hæfi að blogga.

Ég hef ákveðið að enda þetta á tilvitnun í ,,Ég bið að heilsa"
,,Nú andar suðri sæla vindum þíðum,
á sjónum allar bárur smáar rísa
og flykkjast heim að fögru landi Ísa,
til fósturjarðar minnar strönd og hlíðum."

Þvílíkt og annað eins yrkisefni!!

Kv. Margrét ljóða unnandi.

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.08.2008 19:42:59 / Maggidi

meiddi meiddi meiddi....

Jæja, þá er enn ein verslunarmannahelgin liðin. Og aldrei þessu vant þá fór ég ekki neitt, ég var að vinna og var svo bara heima að dundast e-ð með Jóa. Þó svo að ég hafi ekki farið neitt tókst mér hins vegar að skemmta mér afskaplega vel um helgina, þá sérstaklega á laugardaginn. Ég var sem sagt búin í vinnu kl 23:45 og dreyf mig þá heim að leika við jóa, kristínu og heiði(en það var eingöngu gert fyrir heiði þar sem að hún var nú e-ð pirri pú yfir því að fá ekki að fara í partý á egs.) Any who ég sem sagt djammaði heima hjá mér, og varð ansi góð, reif kjaft, lagði mig í baðkarinu og svona:$

En ég fékk líka að kenna á því, ég sit núna með brennda hendi og er eins og bjáni með heimatilbúnar umbúðir. En hvað er ég að væla, bróðir minn er brotin, með gifs upp á miðjan upphandlegg og mamma er liggur við rúmföst. Ef ég hugsa betur um það þá er ég bara nokkuð góð.


Ég kveð að sinni, kv. Margrét sem er einkar stálslegin!

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.07.2008 12:37:38 / Maggidi

Læknar?

Jæja, hver hefur ekki lennt í því að þurfa að fara til læknis? Jæja sá skammtur af fólki er líklega af mjög skornum skammti. Allavega, það sem ég skil ekki við þetta fólk er það að það er búið að mennta sig í e-r 6 ár, og svo fer maður til þeirra af því að það er e-ð að manni og ansi oft lendir maður í því að þeir segja; ,,það er ekkert að þér" eða ,,ég skil þetta ekki, ég veit ekkert hvað er að þér"  og þá á maður að koma aftur seinna. Ég er mikið búin að vera að velta þessu fyrir mér núna, þar sem að ég hef legið veik heima undanfarna daga og ég hugsa að þetta sé kannski bara peningaplokk. Maður er að borga 1000 kall fyrir að koma til þeirra og ef maður er að koma aftur og aftur, þá eru þeir að græða e-n helling.

Allavega það kannski vottar fyrir smá biturleika þar sem að ég er heima veik, þegar að mig langar ekki að vera það. En jæja það er farið að styttast í franska daga og þá verður vonandi fjarska gaman.

Kv. Maggidi sem leiðist í veikindum sínum....:(

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.07.2008 23:27:52 / Maggidi

Nú er horfið norðurland.

Jæja nú er enn ein helgin búin og ég hef ákveðið að smella inn smá bloggi bara svona í tilefni þess að langt er liðið síðan að ég bloggaði síðast, eða bara e-r yfir höfuð. Allavega síðustu helgi fór ég á Hornafjörð með Heiði, til að kíkja á Stebbu, Sigga og co. Það var bara mjög gaman, fyrir utan örlitla timburmennsku á laugardeginum, annars var sunnudagurinn fínn. Við spiluðum, fíbluðumst, borðuðum, drukkum, sungum, horfðum á imbann og gerðum margt fleira skemmtilegt. Svo kynntist maður nýju fólki og nú er spurningin ætti ég að flytja á höfn og fara í skóla þar? Ætli ég gæti það, maður er nú afskaplega feiminn og að fara í skóla með fullt af blá ókunnugu fólki8| Þetta verður minn höfuðverkur næstu daga. En í guðanna bænum segið ykkar skoðun;)

Kv. Margrét, sem veit aldrei hvað hún vill.

» 6 hafa sagt sína skoðun

24.06.2008 13:34:41 / Maggidi

Ár og dagar líða!

Góðan og blessaðan.

Jæja núna er maður komin heim eftir reisuna miklu, og er orðin alræmdur byssusmyglari. Það sem manni dettur ekki í hug að staðaldri. 
    Segjum sem svo að þú sért að keyra á þjóðveginum, bara í góðum fýling og sérð lítinn/stóran jæja ungan bjána á bjána bíl stopp út í kannti með húddið opið standandi á haus. Mundir þú stoppa? Eða værir þú ein af þessum helv#()=%%("(%{[}€`~ 23 manneskjum sem keyra framhjá? Væriru jafnvel manneskjan sem snéri við til að geta horft betur? Andskotinn hafi það nú!

    Hér með auglýsi ég djamm næstu helgi, á eftir að finna stað, komin með stund. Einnig lýsi ég yfir fótabaðsfélaga.

Endilega látið mig vita sem fyrst.

Kv. Margrét sem virðist algjörlega vera búin að tapa sér.

» 3 hafa sagt sína skoðun

08.06.2008 17:28:32 / tuttudoktor

BÖMMMMMMER....

Mér leiðist og mér finnst að þetta costa del sol pakk geti farið að drulla sér heim...

Kær kveðja Fanney.. ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 00:43:22 / Maggidi

Framtíðin???

Sæl verið þið;)

Hver man ekki eftir því þegar að maður var lítill og var með það á tandurhreinu hvað maður ætlaði að verða þegar að maður irði stór. Ég man allavega hvað ég ætlaði að verða, ég ætlaði að verða sjóræningi. En þetta var þegar að maður bjó í "gettóinu", var einkabarn og þ.a.l. uppáhaldið. Tíminn leið og ég fékk ansi margar hugmyndir, mig langaði að verða t.d. bóndi. Jæja, núna er maður orðin stór, ég er ekki sjóræningi, ég er ekki bóndi, ég er ekki neitt. Ég er enn eitt sandkornið í sandkassanum. Fær maður vitrun um hvað mann langar að vera? Nú orðið hef ég mikið verið að velta því fyrir mér hvort að ég ætti að verða hjúkrunarfræðingur. En samkvæmt nýjustu fréttum þá virðist það ekkert vera það sem maður ætti að vera að sækjast eftir. Í gær reyndi ég fyrir mér að verða rithöfundur erótískra bóka og sagði Ástu Hlín hugmyndina af fyrsta kaflanum. En hún var ekki að kaupa þetta, heldur sló hún mig sífellt og mér finnst það einfaldlega ekki hljóma eins og það ætti að vera e-ð sem ég skyldi gerast. 
    Ég stend algjörlega á krossgötum, hvað á ég við líf mitt að gera? Á ég að enda heima hjá mömmu og pabba? Á ég að fara í háskóla og hámennta mig? Á ég bara að fljóta áfram og sjá til hvað gerist? Þetta er vesenið:!:

Kv. Maggidi sem er full ángistar vegna framtíðarinnar.

P.s. Ef einhver hefur áhuga á að heyra brot úr fyrstu erótísku bókinni minni endilega sendið mér línu. Annars skulu þið endilega segja ykkar skoðun á heila klabbinu.

» 5 hafa sagt sína skoðun

06.05.2008 20:54:04 / tuttudoktor

Eitt svona "Prófa-blogg"..

Hæhæ...
Já mér sýnist nú vera þörf á nýju blogg, persónulega fannst mér seinasta blogg bara sori;) nei kanski ekki, en er þetta eitthvað sem menn ættu almennt að vera að blogga um? jú kanski ef þetta er stór partur af lífi mans eins og þetta er hjá Margréti:D en ég ætla ekki að tala um þetta...
....skólinn er nú bara að verða búinn, prófin eru byrjuð og ekkert nema lærdómur sem kemmst að, fyrir utan margt annað:$ svo þegar þau eru búin þá tekur frystihúsið við manni með opnum örmum! (get ekki sagt að ég hlakki mikið til þess að byrja að vinna) en svona er þetta bara, menn verða að eiga í sig og á! svo er það Costa del Sol 29 maí, með helling af fólki og sumum hverjum sem ég bara þekki ekki neitt?? er það eitthvað fun? veit ekki, en ég held að það stefni allt í það að ég verði með Ástu og Margréti í herbergi8| Ó mæ gad, það verður þolraun sem vert er að prófa held ég bara;) 2 vikur...uss uss uss!!
En já þetta blogg var bara svona til að henda einhverju inn, svo held ég að stefni allt í það að sumarið fari að láta sjá sig, ég fór á fótboltaæfingu úti áðan, það var tilbreyting, ekki farið á fótboltaæfingu úti í margar mánuði, næstum ár! en ég bið bara að heilsa, og held áfram að læra...blessó..
-V-

» 4 hafa sagt sína skoðun

16.04.2008 13:10:30 / Maggidi

Kúkur, drulla, hægðir og fleira...

Jæja lömbin mín, it's my turn.
Mér datt nú barasta svona í hug að smjélla inn nýju bloggi þar sem að þessi nýji mánuður vor er nú hálfnaður og ekkert búið að koma frá okkur. Svo að ég hef hugsað mér að redda því.
 Þannig er nú mál með vexti að eins og flest fólk hefur tekið eftir þá er ég nú stelpa. Undarlegt nokk. En svo leiðinlega vill til að margir vilja halda því fram að stelpur kúki ekki. Við erum að sjálfsögðu að tala um að hitt kynið virðist hafa þessar ranghugmyndir. En þetta er náttúrulega bara bull og þvæla, ef að einhver manneskja myndi borða eðlilega og kúka ekki neitt, þá væri hún sárþjáð og útþanin. Þetta er náttúrulega bara bull! Ef að fólk vill ekki trúa þessu og finnst þetta ógeðslegt, þá er nú ekki mikið vandamál að hugsa um einhvað annað.
Það eru að sjálfsögðu margir  með einhverskonar ranghugmyndir, margt fólk í afríku virðist halda að það læknist af HIV með því að hafa samræði við þá sem enn eru óspjallaðir. En það er náttúrulega hinn mesti miskilningur eins og við vitum mörg, það eina sem þetta leiðir af sér eru fleiri HIv smit og það á allt að nokkra mánaða börnum.

Ég vildi bara aðeins tjá mig um hægðir þar sem að ég var pirruð en samt vissi ekkert hvað ég ætti að blogga um.

Þannig að takk fyrir mig og góðar hægðarmiklar stundir.;)

Kv. Margrét Blómarós. Sem virkilega leiðist í stjörnufræði.

» 6 hafa sagt sína skoðun

20.03.2008 20:28:40 / tuttudoktor

Loksins blogg....

Neeeeei Hæhó hæhó....:)

Er ekki kominn tími til að koma með eina litla færslu hérna inn á þessa síðu...við erum um talaðar í bænum fyrir bloggleysi en engu að síður þekktar fyrir mörg kommentin  sem við fáum á þær fáu færslur sem koma hér inn! Jæjja, Sigurveig heiti ég og ég ætla að segja eins stuttlega og mögulegt er frá seinustu vikum í mínu litlausa lífi....

                Ég fór til Reykjavíkur, og það 2 sinnum takk fyrir kærlega...þetta hófst allt saman á því að ég fékk símtal frá systir minni og hún alveg yfir sig gáttuð á því að ég  ætlaði ekki að koma suður á árshátíðina af því að ég var búin að lofa mig í vinnu þessa helgi, EN ÖLLUM til mikillar ánægju þá fékk ég því breytt og leiðin lá til Reykjavíkur! Stelpan flaug á föstudeginum  strax eftir skóla og á flugvellinum beið ótrúlegaófrískastóra/litlasystir mín eftir mér og saman ókum við eitthvað inn í borgina. Þessi föstudagur var ósköp venjulegur í  alla staði NEMA að ég fór í kvikmyndahús og fór á myndina Step Up 2 sem er bara BILAÐ GÓÐ! Þegar ég var að horfa vildi ég óska þess að ég kynni að dansa! Ekki gömlu dansana, nei ó nei heldur svona hipp hopp dansa þar sem menn þurfa ekki að vera í kjólum;) en já svo  var bara farið að sofa og ætlunin var sú að vakna snemma og fara að finna föt fyrir árshátíðina en við fórum ekki út úr húsi fyrr en aðeins seinna en áætlað var;) stelpan fann sér föt og svo lá leiðin heim á leið í sturtu og rafmagnið fór  nú af uppi í grafarholti þannig að við brunuðum af stað inn í kópavog til Kötu frænku og þar gerði maður sig eins sætan og mögulegt var fyrir árshátíðina, tilhlökkunin var nú svona seeeemí mikil, svo bara áður en maður vissi af var fólk farið að dansa magadans og láta eins og vitleysingar! Sko í mínum haus var sú hugsun að fara í bæinn eftir árshátíðina EN raunin varð önnur...endaði inni á videoleigu með einhverja mynd sem ég horfði ekki einu sinni á og fór að sofa! Geri aðrir betur, gerði svo lítið sem ekki neitt á sunnudeginum og fór heim þarna einhverntímann um kvöldmatarleitið! Örvar og Viggi biðu á flugvellinum og þegar ég kom heim þá skellti ég mér í páskabingó, vann meira segja einn vinning og allt;) já jæjja fór svo bara í skólann þarna í eina viku og svo aftur til Reykjavíkur á laugardeginum og Trivial spilið er LIFESAVER!!! Svo ekki sé meira sagt! Sunnudagurinn fór í fermingarveislu hjá Sigrfríði Elín þar hitti maður nú mikið af fólki bæði fólki sem maður þekkti OOOOOG svo líka slatta af fólki sem maður þekkti ekki! En já það var nú farið í bíó á sunnudagskvöldið á myndina 10.000 B.C. sem mér fannst bara alveg ágæt en hef samt heyrt mjög mismunandi skoðanir svona útundan mér! Mánudagurinn var bara eitthvað svona að horfa á flakkarann allann daginn horfi á 3 bíómyndir af því að ég nennti ekki að gera neitt annað, svo var farið í matarboð til Sæju og Heimis það var rosa gott bara;) þriðjudagurinn já, einar buxur keyptar og svo bara eitthvað að skoða IKEA og rúmfatalagerinn svo var farið í bíó! SEMI PRO, varð fyrir vonbrygðum með þá mynd! Líkaði hún ekki eins vel og mig langaði! En það er ekkert við þvi að gera, þar hitti ég líka Ellert Inga sem var mjög ánægjulegt og skemmtilegt allt saman, svo bara heim að sofa og heim á fásk á miðvikudeginum....

Þess má til gamans geta að þegar við lögðum af stað suður á laugardagsmorgunin þá vorum við bara rétt komin á djúpavog þá SPRAKK dekk á bílnum! Og ferðin tafðist um einn klukkutíma eða svo...mjög leiðinlegt en lítið við því að gera!

Þetta er lík alltof langt blogg og enginn nennir að lesa en bless;)

-V-


» 10 hafa sagt sína skoðun

17.02.2008 10:27:15 / Maggidi

You know, gangsters get lonley too....

Halló kæru lesendur.
Ég er nú búin að vera á næturvöktum og ég get ekki sofnað. Og plús það að það vantaði nýtt blogg hérna svo að mér fannst vera komið að mér að tjá mig um líf mitt. Ég hef mikið verið að velta því fyrir mér hvort að ég ætti að taka mér pásu frá skólanum og fara bara að vinna. Svona átta mig á því hvað ég ætti að gera í lífinu, þar sem að ég stend á krossgötum í augnablikinu. Svo veitti að sjálfsögðu ekkert af því að fara að hugsa minn gang! Þannig að ef þið hafið einhverjar ráðleggingar eða skoðanir á þessum vangaveltum mínum, þá endilega segið það sem ykkur liggur á hjarta;)

Kv. Maggidi sem veit ekkert hvað hún vill:(

» 19 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Klukkan
Könnun
Myndir þú mæta nakin/nakinn í vinnuna fyrir 500.000 kr?